Auðveldara að halda
tönnunum hreinum.
Auðveldar þrif í kringum brýr, krónur og tannplanta.
Oral Smith skolar burt matarleifum milli tanna og þar sem erfitt er að koma tannburstanum að.
Skoða Oral Smith ↗
Einfalt í notkun.
Kemstu ekki að
með tannburstanum?
Það getur verið erfitt að ná matarleifum sem sitja fastar milli tanna eða undir brúm. Tannburstinn kemst ekki alls staðar að og tannþráður getur verið snúinn í notkun.
Munnskolstækið hjálpar þér að skola þessi svæði með vatni. Haltu áfram að bursta og fylgdu ráðleggingum tannlæknisins um hreinsun milli tanna.
Hentar tækið mér? ↗Fjögur einföld skref.
Byrjaðu á Soft-stillingunni
á meðan þú venst tækinu.
- 01
Fylltu vatnstankinn
Fylltu tankinn með vatni og settu hann aftur á tækið.
- 02
Veldu stút og stillingu
Smelltu stútnum í tækið. Veldu síðan stillingu með M-hnappnum.
- 03
Settu stútinn í munninn
Ekki kveikja fyrr en stúturinn er kominn í munninn. Ýttu þá á ON/OFF.
- 04
Fylgdu tannholdslínunni
Beindu vatnsbununni meðfram tannholdslínunni og milli tanna.
Hvítur · Oral SmithOral Smith
munnskolstæki
Hreinsaðu milli tanna og í kringum brýr og krónur með vatni. Sex stútar fylgja með og þú getur stillt styrk vatnsbununnar.
Sending á næstu Dropp stöð · Frí sending · 1–3 virkir dagar
Notkun og umhirða.
Stútar, stillingar og hleðsla.
Svona notarðu tækið og heldur því hreinu.
Sex stútar fylgja með
Með tækinu fylgja þrír venjulegir stútar, tunguskrapari, stútur fyrir spangir og mjúkur stútur.
- 3 Venjulegir stútar
- Til daglegra þrifa milli tanna.
- 1 Tunguskrapari
- Til að hreinsa tunguna.
- 1 Stútur fyrir spangir
- Til að hreinsa í kringum spangir.
- 1 Mjúkur stútur
- Fyrir viðkvæmt tannhold.
Stillingar og þrýstingur
Veldu stillingu með M-hnappnum.
- Normal
- Fyrir dagleg þrif.
- Soft
- Mildari vatnsbuna. Gott að byrja á þessari stillingu.
- Pulse
- Vatnsbunan kemur í púlsum.
- DIY
- Þú stillir styrk vatnsbununnar.
Svona notarðu DIY-stillinguna
Veldu fyrst DIY-stillinguna.
- Haltu ON/OFF-hnappnum inni til að auka vatnsþrýstinginn smám saman.
- Vatnsbunan verður smám saman sterkari. Þegar hámarksþrýstingi er náð helst hann óbreyttur í stutta stund.
- Slepptu hnappnum við þann styrk sem þú vilt nota.
Tækið man stillinguna næst þegar þú kveikir á því.
Hleðsla og rafhlöðustaða
Hladdu tækið með USB-C-snúru. Til að athuga hleðsluna heldurðu M-hnappnum (Mode) inni.
| Ljós | Rafhlöðustaða |
|---|---|
| 4 ljós | Meira en 75% |
| 3 ljós | 50–75% |
| 2 ljós | 25–50% |
| 1 ljós | Minna en 25% |
Hreinsun og umhirða
- Ekki sökkva tækinu í vatn eða annan vökva.
- Vatnstankinn má þvo með sápuvatni.
- Ekki nota sterk hreinsiefni eða leysiefni til að þrífa tækið.
Öryggi við notkun
- Ekki nota vatn sem er heitara en 40 °C.
- Ekki halla tækinu við notkun.
- Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir tveggja mínútna notkun.
- Ekki sökkva tækinu í vatn eða annan vökva.
Spurningar?
Hér eru svörin.
Það helsta um notkun og þrif.
Hentar munnskolstæki ef ég er með tannplanta eða brú?
Munnskolstæki getur auðveldað þrif í kringum brýr og tannplanta. Ræddu við tannlækninn þinn um hvort tækið henti þér og hvaða stillingu og stút sé best að nota, sérstaklega ef þú hefur nýlega farið í meðferð.
Kemur tækið í stað tannburstunar eða tannþráðar?
Þú þarft áfram að bursta tennurnar. Notkun tækisins er viðbót við dagleg þrif. Fylgdu ráðleggingum tannlæknisins um tannþráð og aðrar leiðir til að hreinsa milli tanna.
Er erfitt að nota tækið?
Það getur tekið nokkur skipti að venjast vatnsbununni. Byrjaðu á Soft, hallaðu þér yfir vaskinn og settu stútinn í munninn áður en þú kveikir.
Hvernig þríf ég tækið?
Vatnstankinn má þvo með sápuvatni. Ekki sökkva tækinu í vatn eða nota sterk hreinsiefni eða leysiefni. Sjá leiðbeiningar um hreinsun og umhirðu.
Get ég pantað núna?
Ekki enn. Áður en við byrjum að taka við pöntunum birtum við upplýsingar um afhendingu, sendingarkostnað, greiðslur og skilmála hér á síðunni.